DNA-Mataræði
DNA-Mataræði prófið skoðar hvernig erfðir geta haft áhrif á þyngdarstjórnun, matarlyst og viðbrögð líkamans við mismunandi næringarefnum. Markmið prófsins er að hjálpa til við að finna mataræði sem hentar líffræði einstaklings betur.
Prófið greinir erfðabreytileika sem tengjast meðal annars:
þyngdarstjórnun og líkamsþyngd
viðbrögðum líkamans við kolvetnum
viðbrögðum við mismunandi tegundum fitu
próteinþörf
matarlyst og sætindalöngun
tilhneigingu til þyngdaraukningar
Niðurstöðurnar geta hjálpað til við að sníða mataræði sem styður betur við efnaskipti, mettun og jafnvægi í orkuinntöku.
Endilega sendu mér tölvupóst á info@siggaroberts.com fyrir frekari upplýsingar og verð.

