Heilsuprógramm 2
Fyrir þá viðskiptavini sem að hafa komið til mín í upphafsviðtal býð ég upp á tvö heilsufarsprógrömm sem bæði fela í sér ráðgjöf, eftirfylgni, rannsóknir ef þörf krefur og persónulega heilsuáætlun sem inniheldur ráðleggingar um mataræði, fæðubótarefni og lífsstíl. Heilsprógramm 2 eru fjögur viðtöl og býður upp á fullan stuðning sem auðveldar þér að ná og viðhalda langtímamarkmiðum þínum. Ef þú ert með flókin heilufarsvandamál þá mæli ég eindregið með að bóka 8 vikna pakkanum.
Innifalið í hverju prógrammi:
Fjögur 60 mínútna fjarviðtöl
Heilsufarsform til útfyllingar ef þörf er á
3+ klst. Rannsóknarvinna þar sem að ég rýni ýtarlega í þín gögn og heilsufar þitt
Ráðleggingar um mataræði
Sérsniðin næringar- og lífstílsáætlun
Tillögur að fæðubótarefnum (kostnaður fæðubótarefna ekki innifalinn í verði)
Tillögur að rannsóknum ef þörf er á (kostnaður rannsókna ekki innifalinn í verði)
Verð: 73.500 kr.
Í fyrsta viðtali í heilsuprógrammi 2 munum við fara enn ýtarlegra yfir heilsufar þitt, matarvenjur, lífstíl og mögulegar heilsufarsáskoranir. Áður en þú kemur í tímann hef ég, ef að þörf krefur, beðið þig að fylla út heilsufarsform sem að gefur mér mikilvægar upplýsingar í tengslum við heilsu þína. Í tímanum munum við einnig útbúa í sameiningu heiluáætlun sem tekur mið af ráðleggingum mínum varðandi mataræði og lífstíl, ásamt fæðubótaefnum og rannsóknum ef þörf er á.
Í næstu tímum á eftir munum við fara yfir hvernig hefur gengið, niðurstöður prófa ef við á og aðlögum meðferðaráætun ef þörf krefur. Hver tími er sérstaklega miðaður að þínum þörfum þar sem ég styð við þig skref fyrir skref í átt að betri heilsu, hjálpa þér að skilja líkama þinn betur og finna lausnir sem henta þér til lengri tíma.
Verð inniheldur ekki fæðubótaefni eða rannsóknir þar sem þau ráðast af hverjum einstaklingi fyrir sig.

