Um erfðapróf fyrir einstaklingsmiðaða heilsu og næringu

Erfðir okkar hafa áhrif á hvernig líkaminn vinnur úr næringu, bregst við hreyfingu og viðheldur heilsu. Með erfðaprófi er hægt að fá innsýn í þessa þætti og nota þær upplýsingar til að móta persónubundnar ráðleggingar um mataræði, lífsstíl og heilsu.

Prófið er einfalt og byggir á litlu sýni úr blóðdropa eða munni. Þar sem erfðir breytast ekki þarf aðeins að taka sýnið einu sinni á ævinni.

Hvernig getur erfðapróf hjálpað?

Erfðapróf getur hjálpað til við að:

✔ finna mataræði sem hentar þínum líkama betur
✔ styðja við efnaskipti og orkujafnvægi
✔ bæta árangur í hreyfingu
✔ styðja við heilsu til lengri tíma
✔ taka upplýstar ákvarðanir um lífsstíl

Mikilvægt að hafa í huga

Erfðir eru aðeins einn þáttur sem hefur áhrif á heilsu. Mataræði, hreyfing, svefn og streita skipta einnig miklu máli.

Markmiðið með DNA greiningu er að hjálpa til við að móta persónubundna nálgun að heilsu og vellíðan.

Endilega sendu mér tölvupóst á info@siggaroberts.com fyrir frekari upplýsingar og verð.

Next
Next

DNA-Grunnur